Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

You're the one that I want!

GreasekvöldEnn og aftur velkomin til memmorí lein! Núna eru komnar inn ýmsar myndir Ítarefnismöppuna. Þarna er að t.d. að finna ritgerðir fermingarbarna, leiðbeiningar til ungra stúlkna (don't even go there, ég veit ekkert hvað þetta er!), blaðaúrklippur af greinum um mynd myndanna, Grease, og magnaðar myndir af Greasekvöldi í Gaggó svo fátt eitt sé nefnt! Trúið mér. Þeim mun meira sem þið sendið, þeim mun glæsilegra verður þetta!

Well this car is automatic, it's systematic, it's hydromatic...
Why it's greased lightnin'!


Áfram streyma inn myndir

Í heita pottinumJá, gaman að því hversu vel sumir hafa tekið við sér. Við vorum að frá hátt í þrjátíu myndir frá Dóru Þórðar (nú Ramsey) sendar frá USA. Þetta eru m.a. skólamyndir úr Barnaskóla af hinum þjóðþekkta bekk KJ ásamt fermingarmyndum, myndum úr skíðaferðalagi í Gaggó og myndir úr ýmsum ferðum í Gaggó. Frábært og áfram bara. Sérstaklega hvet ég ykkur til að senda fermingamyndina af ykkur. Við þurfum að taka okkur á í þeim hluta. NIKE!

En bætast við myndir

SkíðaferðFengum enn fleiri myndir, nú frá Ingu Teits. Þetta eru myndir úr skíðaferðalagi (bætti þeim í möppuna sem kominn var með því heiti). Síðan myndir frá fermingarafmælinu 1999 (bjó til sér möppu fyrir þær í þeirri von að fleiri myndir úr því afmæli bættust við). Þá voru myndir úr Gaggó sem fóru inn í þá möppu og loks voru þarna myndir frá barnaskólaárunum (setti líka inn nýtt albúm með því nafni því vonandi eiga fleiri myndir eftir að koma). Njótið vel og bestu þakkir til allra sem nú leggja sitt af mörkum til að gera þetta að skemmtilegasta fermingarafmæli hingað til.

Fermingarafmælin '89 og '94

Nonni Ben og AtliUnnur Karls sendi okkur fullt af frábærum myndum frá fermingarafmælunum '89 og '94. Þær eru nú allar komar hér inn í sameiginlegt albúm með viðeigandi nafni. Fyrst eru myndirnar frá '89 og svo frá '94. Tær snilld og takk fyrir þetta Unnur. Síðan hafa bæst við fleiri myndir. Og þið hin: "Koma svo...!"

Myndir, myndir, myndir!

TobbaJæja kæru félagar. Nú hrúgast inn myndir og ég get sagt ykkur að það tekur tímann sinn að setja þetta inn því maður er dottinn inn í "nostragíuskoðunarhaminn" um leið. Hér eru myndir úr skíðaferðalagi, einhverju öðru ferðalagi (sem fóru inn í albúm með myndum úr Gaggó) og svo allskyns bekkjamyndir og fleira. En mikill vill meira og nú bið ég alla sem vettlingi geta valdið að senda mér myndir eins og þið getið. Sérstaklega væri gaman að fá af ykkur fermingamyndir, bæði hópmyndir (aðeins tvær komnar þegar þetta er skrifa) og einstaklingsmyndir (þið vitið t.d. þessa í kirtli með Nýja testamentið sem er af Tobbu hér með þessari færslu eða í fermingafötunum). Okkur vantar fullt. Einnig gjarnan bara allar myndir teknar við ýmsar uppákomur í árgangnum og þá má þetta vera frá barnaskólaárunum líka. Endilega hafið líka sambandi við alla innan ykkar vinahóps sem eiga myndir og sendið mér þetta skannað. Og skrifið í gestabókina, og sendið pistla, og takið daginn frá og svo framvegis. Missum okkur bara í þessu Tounge

Kv.
Haraldur Dean Nelson (Halli Dean)


Bekkurinn minn og þinn

6jgÞetta er 6. JG.  Ég man þetta nú ekki alveg 100% en held að við höfum fermst árið eftir,  eða fermdust við eftir 7. bekk?  Þið munið þetta kannski,  allavega vorum við ofursvöl þarna.  Allir að undirbúa glæstan feril í módelbransanum.  Gunni Odds með hönd á hjarta,  strax kominn í stellingar undir þjóðsöngnum á Laugardagsvelli.  Stelpurnar hverri annarri fallegri,  vel til hafðar og ábúðafullar.  Bæjarstjórinn brosmild og til í opinn borgarafund (Ætli þeir fyrir norðan viti að Sigrún er Keflvíkingur...;-)  Unnur strax ákveðin í að kasta spjóti lengra og lyfta allskonar ofsalega þungu dóti og henda því langt út á iðagrænan völlinn.  

Ég er að sjá það núna að það eru tveir tannlæknar í hópnum,  gott að vita það þegar þarf að upgreida stellið.  Ef Jói Geirdal væri ekki með skegg gæti hann verið einn af okkur,  svo unglegur og flottur.  Ég veit ekki með ykkur en mig hlakkar mikið til að hitta allt þetta efnilega fólk 30. árum síðar.  Ætli Gunni sé enn í landsliðinu?  Hvar er Gulli Torfa?  Man ekki eftir að hann hafi mætt á fyrri fermingarafmæli.  Nú eða Gróa?  Hef ekki séð hana síðan hún gaf mér kettling eða tvo á Faxabrautinni. Og hvar eru Drabba og Aldís?

Sjáumst í fermingarafmælinu þann 18. apríl n.k í KK húsinu,  dagskrá auglýst síðar!  Boðskort í hönnun og allt.

Sverrir Geirdal 


 


30. ára Fermingarafmæli / Árgangsskemmtun 18. apríl

Árið 1979 fermdist föngulegur hópur barna í Keflavíkurkirkju. Ungmenni uppfull af hormónum með miklar væntingar til framtíðarinnar. Þessi hópur hefur verið duglegur að minnast gamalla tíma og koma saman. Á fimm ára fresti höfum við haldið upp á unglingsárin og skemmt okkur saman – átt góðar stundir, dansað – sungið – hlegið ... you name it!

Árin hafa leikið okkur misvel...
sumir eru myndarlegri en þeir voru – aðrir eru klárari en þeir voru – og enn aðrir eru bara alveg eins og munu aldrei breytast Smile

EN NÚ ER KOMIÐ AÐ ENDURFUNDUM::::

30 ára Fermingarafmæli / Árgangsskemmtun

Undibúningur er hafinn að fermingarafmæli 1965 árgangsins úr Keflavík. Áætlað er að halda skemmtunina þann 18. apríl nk. í KK salnum í Keflavík. Undirbúningsnefnd hefur haldið einn fund og áorkað miklu Tounge

Veislustjóri og ræðumaður hafa verið ráðnir... Upplýst verður síðar hverjir það eru...

Við setjum inn á bloggsíðuna nánari upplýsingar fljótlega.

Undirbúningsnefnd óskar eftir að fá myndir sem hægt er að nota á bloggsíðuna sem og skemmtiefni hverskonar. Endilega dustið rykið af myndunum og sendið þær á Halla Dean á netfangið: keflavik1965@gmail.com.

MUNIÐ LAUGARDAGINN 18. APRÍL 2009 ...
HITTUMST OG EIGUM GÓÐAR STUNDIR ...

Endilega látið þetta berast til jafnaldra okkar...


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband