45 ára fermingarafmæli - Skrá sig strax
11.3.2024 | 11:36
Nú er aldeilis kominn tími á hitting og 45 ára fermingarafmælið okkar verður haldið á Hótel Keflavík laugardaginn 27. apríl. Við minnum á Facebooksíðu hópsins okkar en hér eru líka allar upplýsingar.
Um er að ræða glæsilega 12 rétta smáréttarveislu en auðvitað er hittingurinn aðal fjörið. Hinn ofurmennski og ávallt hressi Nonni Ben verður veislustjóri og þessu vill enginn missa af!
Miðaverði er mjög stillt í hóf eða aðeins kr. 8.650 sem er lægra en það var fyrir 5 árum (2019)! Og nú þarf að bregðast fljótt við ef þið hafið ekki gert það nú þegar. Beint í heimabankann og leggja inná reikninginn árgangsins er:
142-26-1965
kt. 590314-0720
Hótelið býður sérstakt tilboðsverð sem hljóðar uppá kr. 12.400 nóttin með morgunverði á mann í Twin og kr. 22.800 fyrir eins manns gistingu. Best er að bóka með því að senda tölvupóst á stay@kef.is og afsláttarkóðinn er: ÁRGANGUR 65. Endilega pantið sem allra fyrst ef þið ætlið að nýta ykkur þetta, takmarkaður fjöldi herberja er í boði á þessu verði. Ef einhverjir vilja stærri herbergi eða svítur þurfa viðkomandi að semja um það sérstaklega við Steina Jóns hótelstjóra.
En umfram allt að bíða ekki með að skrá sig og greiða í hófið. Við þurfum að vita ca. fjöldann sem allra fyrst. Þannig að greiða kr. 8.650 á reikning 142-26-1965 á kt. 590314-0720 strax í dag!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dagskrá og skráning á 40 ára fermingarafmælið okkar
4.2.2019 | 02:09
Eins og fram hefur komið munum við halda uppá 40 ára fermingarafmælið okkarþann 30. mars næstkomandi. Miðaverð verður kr. 8.900 og innifalið er kvöldverður og skemmtun og ómetanlegar upprifjanir. Vinsamlega leggið inn á reikning 0142-26-1965 kt. 590314-072. Nánari upplýsingar á plakatinu hér að neðan og á viðburðinum okkar á Facebook.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
40 ára fermingarafmæli 30. mars
21.1.2019 | 23:03
Vinsamlega berið út fagnaðarerindið
Við ætlum að halda uppá 40 ára fermingarafmælið okkar laugardaginn 30. mars næstkomandi!
Takið daginn og kvöldið frá... nánari dagskrá kemur fljótlega
Látið skólafélaga endilega vita og munið að fylgjast með Facebooksíðunni okkar. Þar er könnun sem þið ættuð að svara ef þið eruð ekki þegar búin að því. Fjölmennum nú sem aldrei fyrr!
Bona fide in saecula saeculorum
Bloggar | Breytt 4.2.2019 kl. 01:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
50 ára afmælishóf árgangsins okkar
15.2.2015 | 18:21
Miðasala er hafin á 50 ára afmælishófið okkar sem haldið verður í Stapa þann 2. maí næstkomandi. Miðaverð aðeins 65 50 (kr. 6.550.-)
Greiða skal inn á reikning 0142-05-75050 kt. 590314-0720 - fyrir 7. apríl. Vinsamlega setjið netfangið ykkar í skýringu á millifærslunni. Innifalið í miðaverði er matur, skemmtun og Bergásball.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
50 ára afmælishóf 2015
15.5.2014 | 09:28

Skemmtinefndin kom saman í gærkvöldi og skipulagði 50 ára afmælishóf '65 árgangsins þann 2. maí 2015.
Nú verðið þið að takið daginn frá!
Engar afsakanir, nú verðið þið að mæta. Þeir sem eru í útlöndum geta bókað flug núna örugglega mjög ódýrt, þeir sem eru í sveitum landsins geta flýtt sauðburði, þeir sem eiga barnabörn geta látið vita með góðum fyrirvara að þeir eru uppteknir, þeir sem vilja fara í strekkingu geta farið núna og verið búnir að jafna sig, nægur tími fyrir detox, danstíma, botox og síðast en ekki síst þeir sem vilja safna skeggi geta byrjað núna
Við munum setja inn frekari upplýsingar þegar að nær dregur.
En dagurinn er negldur niður, 2. maí 2015
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
35 ára fermingarafmæli
2.4.2014 | 00:36
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Auglýsing fermingarafmæli ´65 árgangs
23.2.2014 | 18:44
35 ára fermingarafmæli árgangs ´65
Verður haldið í KK-húsinu 29.mars
Það verður fjör frá morgni til kvölds.
Kl 13.00 ætlum við að hittast í Keflavíkurkirkju og minnast látina fermingarsysktkina sem eru því miður orðin fimm og eiga góða stund saman. Þaðan skal arkað að HF og fara í púttmót. Pútt-kylfur á staðnum. Ef við höfum tíma þá förum við aðeins yfir á Duus og fáum okkur einn kaldan áður en haldið er í Hljómahöllina um kl 15.00 þar sem Tómas Young forstöðumaður mun taka á móti okkur og sýna okkur höllina. Síðan er ætlunin að taka nokkar „bekkjamyndir“. Við ættum að vera búin þar um 16.30 þá eru allir frjálsir. Þá er tími kominn til að sturta sig og sápa, því eflaust fara einhverjir í fyrirpartý áður en mætt er í KK-húsið.
KK-húsið opnar kl 19.00
Veislustjóri verður Guðbrandur Stefánsson formaður stjórnar.
Ræðumaður kvöldsins er Jón Ben ritsnillingur frá gaggó og félagsblaðinu Stakk.
Borðhald hefst kl 20 og verður í boði smáréttir frá Menu. Á hlaðborðinu verður ;
Chilly marineraður kjúklingur á spjóti, Lambafille á spjóti í satay, Lamba bollur á spjóti í teriyaki og sesam, Kósosrækjur með sweet chilly, Hvítlauksristaður humar og tígrisrækja á teini með piparót. Osta og ávaxtabakki með brauði, smátt skorið grænmeti með ranch sósu
Súkkulaði gosbrunnur með jarðaberjum, kiwi og melónum.
Gunnar Páll mun passa vel uppá að enginn verði þyrstur um kvöldið, ljúfar veigar gegn vægu gjaldi á barnum.
Gunnar Már mun sýna okkur frábærar myndir á tjaldi frá fyrri fermingarafmæliskvöldum.
Dj Grétar Magnússon mun sjá um að þeyta skífurnar. Glymrandi eitís músík og rokk og ról. Meatloaf mun án efa heyrast oftar ein einu sinni um kvöldið. Það kannski borgar sig að smyrja mjaðmirnar fyrir kvöldið og mæta í góðum dansskóm.
Allt þetta kostar aðeins 5500.kr
Þið þurfið að leggja inná bankareikninginn okkar fyrir 21.mars. Reikningsnúmerið er : 0142-05-70077 kt 011265-5969, setja nafn í skýringar. Reikningurinn er á nafni gjaldkerta félagsins (Sirrý Sig.).
Borga fyrri 22.mars svo hægt verði að panta matinn fyrir mannskapinn.
http://hotelkeilir.is/Index/FORSIDA/
Hótel Keilir á Hafnargötunni hefur gert okkur frábært tilboð á herbergjum helgina 28-29 mars. Single herbergi er á 8.000.kr nóttin og Double herbergi er á 10.500.kr Það sem þið þurfið að gera ef þið ætlið ykkur að nýta þetta frábæra tilboð er að hringja sjálf á hótelið og bóka fyrir ykkur en muna að láta vita að þið eruð að panta á fermingarárgangstilboðinu
Hlökkum til að sjá ykkur öll, kveðja Stjórnin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Allt að gerast!
12.2.2014 | 20:25
Nú er stjórnin á fullu að undirbúa 35 ára fermingarafmælið. Það verður haldið 29. mars í KK húsinu. Þetta verður bara stuð. Dj Grétar sér um fjörið og það verður dansað eins og enginn sé morgundagurinn. Maturinn kemur frá Menu4u og er ekki af verri endanum. Glæsilegir smáréttir, ostar og súkkulaðibrunnur með ávöxtum. Söngveigar verða í boði gegn sanngjörnu gjaldi. Enginn ætti að verða þyrstur eða svangur.
Ef þið eruð æst í að hafa skemmtiatriði þá endilega hafið samband við okkur í stjórninni.
Fylgist með hér og á facebook síðunni okkar. Keflavík árgangur 1965
júhú, þetta verður stuð.
Kv.
stjórnin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Styrkur til Velferðasjóðs Keflavíkurkirkju
15.12.2009 | 21:21
Kæru fermingarsystkin. Aldrei þessu vant var smá afgangur af miðasölunni eftir hið frábæra 30 ára fermingarafmæli í apríl síðastliðnum. Stjórnin ákvað af því tilefni að styrkja Velferðasjóð fermingarkirkjunnar okkar núna fyrir jólin og vonumst við til að ykkur finnist peningunum vel varið með þeim hætti. Svo stefnum við auðvitað bara á að gera enn betur á 35 ára afmælinu. Ég er þegar byrjaður að æfa danssporin ... look out girls, you'll be Nelson-ized!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjar myndir!
2.6.2009 | 23:22

Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)